Tríó Sunnu Gunnlaugs - Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ

Tríó Sunnu Gunnlaugs - Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ

Hallgrímskirkja í Saurbæ, Saurbærjarvegur, 301 Akranes Kort

sun. 12.07.2026 16:00

Tríó Sunnu Gunnlaugs

Þessir tónleikar eru konfekt fyrir aðdáendur jazztónlistarinnar.

Tríó Sunnu Gunnlaugs hefur verið í framvarðasveit íslensks jazz um áratugaskeið. Tríóið hefur gefið út 6 albúm saman og komið fram víða um heim. Tónlist þeirra fellir saman lýríska nálgun evrópsku senunnar við eldmóð hins bandaríska jazz á sérlega persónulegan máta og heillar áheyrendur með norrænni angurværð og gleði enda ber nýjasta albúmið titilinn Go Round Merry.

Tríóið skipa Sunna Gunnlaugs á píanó, Þorgrimur Jonsson, bassaleikari og Scott McLemore slagverk.

Aðgangur 3.500 kr.

Flytjendur