Pólsk leiðsögn í Viðey

Pólsk leiðsögn í Viðey

Friðarsúlan, Viðey, 104 Reykjavík Kort

sun. 16.08.2026 13:00

Hefur þú komið í Viðey? Sunnudaginn 16. ágúst kl. 13:00-15:30 verður leiðsögn á pólsku í Viðey. Marta Wieczorek, aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík, sér um leiðsögnina.
Viðey er frábær staður til að njóta útiveru í einstöku umhverfi. Þar er mikil saga, fjörur og útilistaverk.

Viðey er eyja og til að komast þangað þarf að sigla með ferju. Þátttaka í leiðsögninni er ókeypis en kaupa þarf miða í ferjuna. Ferjan siglir frá Skarfabakka sunnudaginn 16. ágúst kl. 13:15 og til baka kl. 15:30 en þið getið verið lengur ef þið viljið. Við mælum með að kaupa miða fyrir fram á vef Eldingar: https://elding.is/videy-ferry-skarfabakki
Aðgengi: Til að komast í ferjuna er gengið um landgang sem er misbrattur eftir sjávarföllum. Göngustígar í Viðey eru ýmist malarstígar eða slóðar í graslendi. Hjálparhundar eru velkomnir.
Strætisvagnar: Um helgar er næsta stoppistöð LHÍ Laugarnesi (16 mín. gangur frá ferju).
Verið öll velkomin!

Flytjendur

  • Marta Wieczorek
    Marta Wieczorek

    varaþingmaður á Alþingi Íslendinga og aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík