SexEd - Kynfræðslukarnival fyrir fullorðna
Borgarleikhúsið | Litli Salur, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
sun. 04.10.2026 20:00
Sex Ed er fullorðinssirkus og kynfræðslukarnival þar sem íslenska kabarettsenan mætir óbeisluðum brúðusirkus Visceral Abstractions frá New York. Hópurinn lýsir sér sem absúrdísku sirkus- og brúðuleikhúskollektívi sem hefur frá 2017 blandað saman brúðum, líkama, loftfimleikum, húmor og súrrealískri sviðslist. Í þessari sýningu er mannslíkaminn, löngunin og samskiptin tekin í sundur og sett saman aftur með ódýrum bröndurum, fjölleikahússspennu og óvæntri blíðu.
Sex Ed hefur verið þróað í nokkrum útgáfum í New York og meðal annars sýnd á The Slipper Room, einum þekktasta kabarettstað borgarinnar. Nú fær sýningin íslenskan líkama, íslenska rödd og nýtt samhengi á litla sviðinu, þar sem lofthæðin er nýtt til hins ítrasta. Útkoman er fræðsla sem gleymir aldrei að skemmta – skökk, líkamleg, forvitin og ófeimin.
Leikstjórn: Margrét Erla Maack
Aðstoðarleikstjóri: Juanita Cardenas
Upprunaleg hugmynd: Juanita Cardenas
Dramatúrg: Sigurður „Gógó” Starr
Leikmynd og búningar: Juanita Cardenas, Visceral Abstractions og hópurinn
Leikgervi: Sigurður „Gógó” Starr og Visceral Abstractions
Brúður: Visceral Abstractions með hjálp frá Pilkington Props
Sviðshreyfingar: Hópurinn
Ljósahönnun: Jóhann Friðrik Ágústsson
Sýningarstjórn: Vigdís Perla Maack
Yfirmaður loftfimleikaöryggis: Thomas Burke
Höfundar, leikarar, dansarar og sirkusfólk:
Dana Abrassart, Jon Joni, Jón Sigurður Gunnarsson, Juanita Cardenas, Margrét Erla Maack, Róberta Michelle Hall, Ryan Shinji, Sara Líf Magnúsdóttir, Sally Cowdin, Sindri Freyja Bjarnabur, Sigurður „Gógó“ Starr, Tamara Ochoa, Thomas Burke.
Flytjendur
-
Margrét Erla Maack
Burleskdrottning Íslands
-
Róberta Michelle HallHúlladansari og skemmtikraftur
-
Sally Cowdin
Choreographer
-
Sindri Freyja Bjarnabur
Creator of things. Enjoyer of stories. Nude person at a swimming pool
-
Jóhann Friðrík Ágústsson
Lýsing
-
Vigdís Perla Maack
Sundballetttími með systrunum