Finnst þér gaman að spila Snákaspil? Ef svo er, þá hefur þú tækifæri til að búa til þitt eigið borðspil byggt á Snákaspili.
Um hvað verður spilið? Kannski um geiminn, ferð kanínu í töfraskógi, eða ævintýri persónu sem þú hefur sjálf(ur/t) skapað? Þú ræður! Komdu og sökktu þér í sköpunargleðina með okkur.
Smiðjan hentar börnum frá 6 til 12 ára.
Dariia Tumanova er listakona og myndlistarkennari frá Úkraínu. Hún er með sína fyrstu sýningu á Íslandi í Borgarbókasafninu Spönginni frá 7.-28. ágúst og heldur að því tilefni tvær myndlistasmiðjur fyrir börn.
Skráning er nauðsynleg. Ókeypis aðgangur!
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is
Dariya Tumanova
dariyatumanova7@gmail.com
Borðspilasmiðja með Dariyu
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
fös. 14.08.2026 16:00