ÞAU á Hesteyri
Ísafjörður-Hesteyri, 401 Ísafjarðarbær, Ísland, Kort
sun. 26.07.2026 14:00
ÞAU spila í sumar
Á HESTEYRI
🗓 Sunnudaginn 26. júlí
🕘 Kl. 14:00 - 19:45
🎟️ Miðasala ekki hafin
Nánari upplýsingar um tónleika og heimsókn á Hesteyri innan skamms.
ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk Björnsdóttir og gítar- og trommuleikarinn Garðar Borgþórsson.
Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla rýmið af tónlist.
ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og vinna ÞAU nú að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland.
ÞAU komu nýverið fram á HEIMA í Hafnarfirði og á Midgard og halda nú ferðalaginu áfram um landið!
Erfiðasta verkefnið verður líklegast að koma öllu fyrir í bílnum. Amman og afinn fylgja hljómsveitinni á ferðalaginu og passa Glóeyju litlu á meðan foreldrarnir rokka. Gott plan! Eitt er víst að þetta verður ábyggilega stuð, eins og síðustu fimm sumur! 😋
☀️☀️☀️☀️☀️
ÞAU spila í sumar:
22. apríl (mið) - ÞAU á HEIMA í Hafnarfirði (miðasala)
5. júní (fös) - ÞAU og Valborg Ólafs í Midgard (miðasala)
10. júlí (fös) - ÞAU á Frjó Listahátíð - Alþýðuhúsið Siglufirði (miðasala við hurð)
22. júlí (mið) - ÞAU í Heydal (frítt inn - frjáls framlög)
25. júlí (lau) - ÞAU og Bríet Vagna í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal (miðasala ekki hafin)
26. júlí (sun) - ÞAU á Hesteyri (miðasala ekki hafin)
28. júlí (þrið) - ÞAU í Dalbæ í Unaðsdal - (frítt inn - frjáls framlög)
30. júlí (fim) - ÞAU í Síldarverksmiðjunni á Djúpavík - (frítt inn - frjáls framlög)
6. ágúst (fim) - ÞAU á Gísli, Eiríkur og Helgi á Dalvík (frítt inn - frjáls framlög)
8. ágúst (lau) - ÞAU á LEYNI á Akureyri (frítt inn - frjáls framlög)
14. ágúst (fös) - ÞAU á ÆGIR 220 (miðasala við hurð)
🌻🌻🌻🌻🌻
FOLLOW ÞAU AND LISTEN ON SPOTIFY
https://open.spotify.com/artist/6Ct50lb1SYNbNs1JEPDGcJ...
EPK/Website: https://www.rakelbjork.com/epk
Facebook: https://www.facebook.com/thaucompany
Instagram: https://www.instagram.com/thau.company/
🌻🌻🌻🌻🌻
____________________________
- English -
Flytjendur
-
ÞAUHljómsveitin Þau er samstarfsverkefni listafólksins og hjónakornanna Rakelar Bjarkar Björnsdóttur og Garðars Borgþórssonar. Tvíeykið hefur þegar gefið út tvær plötur, ,,Þau taka Vestfirði” og ,,Þau taka Norðurland” og haldið fjölda tónleika. Um er að ræða tónlist sem samin er við ljóð skálda annars vegar frá Vestfjörðum og hins vegar frá Norðurlandi.