Húnavökuball - Alles ókei, Alaska & Flóni

Húnavökuball - Alles ókei, Alaska & Flóni

Félagsheimilið Blönduósi, Húnabraut 6, 540 Blönduós Kort

fös. 17.07.2026 23:00

ISK 6500.00
Miðar / Skráning
ISK 6500.00
Miðar / Skráning

Húnavaka 2026 – föstudagsball

Húnavaka fer fram á Blönduósi dagana 16.–19. júlí 2026.


Á föstudagskvöldinu mun hljómsveitin Alles ókei spila fyrir dansi og einnig koma þau Alaska og Flóni á svið með þeim.

Húnavökuböll hafa verið afar vel sótt í gegnum tíðina og hlökkum við til að taka á móti ykkur enn á ný á einni skemmtilegustu helgi sumarsins!

Við viljum einnig minna ykkur á að við viljum koma saman, skemmta okkur vel og eiga ánægjulega nótt án vandræða.


Ef það vakna einhverjar spurningar er hægt að senda okkur skilaboð á Facebook undir nafninu - Félagsheimilið á Blönduósi.


Mikilvægar upplýsingar

🎟️ Aðgangur

  • Armbönd verða afhent gegn framvísun skilríkja og pöntunarstaðfestingu/miða.
  • Armbönd skulu sett á við afhendingu.
  • Hægt verður að nálgast armböndin á öðrum viðburðum sem haldnir eru í félagsheimilinu og einnig verðum við með opið fyrir afhendingu á milli 14:00 og 17:00 föstudag og laugardag.

🔞 Aldurstakmark

  • Miði verður ekki endurgreiddur ef handhafi uppfyllir ekki aldursskilyrði.

⚠️ Armbönd

  • Sé armband ekki sett rétt á við afhendingu eða sett of laust á úlnlið telst það ógilt.
  • Ekki verður afhent nýtt armband eða veitt endurgreiðsla vegna ógilds armbands.


Hlökkum til að taka á móti ykkur - Hafa gaman ehf



Flytjendur

  • Alles Ókei?
    Alles Ókei?

    Hljómsveit

  • Lask
    Lask

    Live hardware performer, Dj, and Producer from AU.

  • FLÓNI
    FLÓNI

    Flóni var að gefa út magnaða plötu sem ómar í allra eyrum þessa dagana.