Tónleikar með MAAR í Mengi
Mengi, Óðinsgata 2, 101 Reykjavík Kort
sun. 12.07.2026 16:00
MAAR er samvinnuverkefni Aspar Eldjárn, Helgu Ragnarsdóttir og Valeriu Pozzo, þriggja vinkvenna sem allar starfa í tónlist en eru nú í fyrsta skipti að semja saman. Vinkonurnar kynntust fyrir rúmum áratug í London þar sem þær bjuggu, og hafa allar starfað við tónlist og aðra listsköpun síðan þá. Þær hafa unnið saman um langt skeið, þar sem þær hafa stutt við og leikið tónlist hver annarar en leiða nú í fyrsta sinn hesta sína saman í sameiginlegri tónsköpun.
Kveikjan að þessu samstarfsverkefni varð til í samtali þeirra á milli þar sem þær ræddu mikilvægi þess að búa til umhverfi sem hlúir að, styður við og hvetur til sköpunar og vildu þær búa til slíkan griðarstað í hver annarri. Þær héldu því í sumarbústað á suðurlandi sumarið 2024, þar sem á einni viku urðu til 3 lög og textar sem prýða fyrstu stuttskífu sveitarinnar sem kom út í júní sl. Þær eru um þessar mundir að vinna að þeirra fyrstu breiðskífu sem mun koma út á næsta ári. Á efnisskrá tónleikanna verða þessi glænýu lög þeirra, sem sum hver eru enn í mótun. Tónlistin einkennist af röddunum, djúpstæðum en óræðum textum og órafmögnuðum hljóðfærum.
Miðaverð 2500 krónur, selt inn í hurð.
Flytjendur
-
MAARThe latest endeavour by singer-songwriters Ösp Eldjárn, Valeria Pozzo and Helga Ragnars.