Kúmentínsla með Björk Bjarnadóttur / Caraway Harvesting with Björk Bjarnadóttir
Viðeyjarferjan, Skarfagarðar 3 (Skarfabakka í Sundahöfn), 101 Reykjavík Kort
lau. 15.08.2026 13:15
Kúmenfræin í Viðey 🌿 eru orðin fullþroskuð til að tína og þér er boðið í fræðandi uppskeruferð. Björk Bjarnadóttir, umhverfis- og þjóðfræðingur leiðir tínsluna og segir gestum frá sögu kúmensins og fleiru sem tengist Viðey.
Upphaf kúmenræktunar má rekja til aftur til Skúla Magnúsar landfógeta sem hóf ýmsar ræktunartilraunir í Viðey upp úr miðri átjándu öld, þó með misjöfnum árangri. Viðeyjarkúmenið vex þar enn og þykir smærra og sætara en annað kúmen en það eru ekki allir sem vita að þetta litla fræ hefur þó nokkurn lækningamátt og ekki skemmir fyrir hversu bragðgott það er.
Gestir eru hvattir til að taka með sér taupoka, lítinn hníf🔪 eða skæri✂️.
Siglt verður frá Skarfabakka kl. 13:15. Björk tekur á móti gestum göngunnar við kirkjuna úti í Viðey. Gangan sjálf tekur um 1,5-2 klst. Ferjan siglir tilbaka að göngunni lokinni.
‼️Vinsamlegast kaupið miða fyrirfram í ferjuna á heimasíðu Eldingar: https://elding.is/is/videyjarferjan-fra-skarfabakka
Þátttaka í göngunni er gestum að kostnaðarlausu en greiða þarf í ferjuna. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt.
Flytjendur
-
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt.
-
Kvöldganga | Laugavegur með Önnu Dröfn og Guðna Valberg
Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Borgarsögusafn heyrir undir Reykjavíkurborg.
-
Björk Bjarnadóttir
Umhverfis-þjóðfræðingur og sagnaþula plantna
-
Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum
Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Borgarsögusafn heyrir undir Reykjavíkurborg.