Elskar þú hunda? Dariya Tumanova hefur mjög gaman af dýrum og sérstaklega gaman af því að teikna dýr. Hún ætlar að kenna þér að mála hund af einstaklega fallegri tegund – dalmatíuhund! Hann er glaðlyndur, fjörugur, blíður og virðist alltaf brosa.
Öll sem langar að mála svona fallegan hund – eða hund sem líkist honum – eru hjartanlega velkomin á myndlistarsmiðju.
Smiðjan hentar börnum frá 6 til 12 ára.
Dariya Tumanova er listakona og myndlistarkennari frá Úkraínu. Hún er með sína fyrstu sýningu á Íslandi í Borgarbókasafninu Spönginni frá 7.-28. ágúst og heldur að því tilefni tvær myndlistasmiðjur fyrir börn.
Skráning er nauðsynleg. Ókeypis aðgangur!
Nánari upplýsingar veita:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is
Dariya Tumanova
dariyatumanova7@gmail.com
Hundateiknismiðja með Dariyu
Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort
mið. 12.08.2026 16:00