Bjargey Birgisdóttir
classical
Um flytjanda
Bjargey Birgisdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Helgu Steinunni Torfadóttur í Allegro Suzukitónlistarskólanum og útskrifaðist frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar þar sem kennari hennar var Auður Hafsteinsdóttir. Hún lauk bakkalárgráðu frá Hochschule für Musik Basel undir handleiðslu Barböru Doll árið 2023 og útskrifaðist nýverið með meistaragráðu frá Hochschule für Musik Freiburg undir handleiðslu Simone Zgraggen. Bjargey hefur hlotið margvísleg verðlaun og styrki fyrir fiðluleik sinn, leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið konsertmeistari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún var í starfsnámi hjá Philharmonisches Orchester Freiburg árið 2024 og er meðlimur hinnar virtu Gustav Mahler Jugendorchester.
Viðburðir framundan
-
Háskólakórinn and Sinfóníuhljómsveit: Requiem by Gabriel FauréLangholtskirkjalau 21. nóv 2026 20:00Skoða viðburð -
Háskólakórinn and Sinfóníuhljómsveit: Requiem by Gabriel FauréLangholtskirkjasun 22. nóv 2026 20:00Skoða viðburð